

XAX Advisors sinnir sérhæfðum fjármálaverkefnum fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina. Verkefnin hafa það sammerkt að krefjast mismunandi nálgunar, sérstaklega hvað varðar almennt fyrirkomulag viðskipta svo og samskipti við alla hagsmunaaðila. Þess vegna leggur starfsfólk XAX Advisors ríka áherslu á að þekkja þarfir viðskiptavina sinna og viðhalda góðu langtímaviðskiptasambandi.
Starfsfólk XAX Advisors hefur í gegnum tíðina myndað sterkt tengslanet við innlenda og erlenda fjárfesta og stjórnendur margra af öflugustu fyrirtækjum landsins.
Starfsfólk XAX Advisors býr yfir áralangri reynslu og yfirgripsmikilli þekkingu á íslenskum fjármálamarkaði og hefur komið að fjölmörgum viðskiptum undanfarna áratugi, stórum og smáum. Sérhæfing starfsfólksins snýr aðallega að kaupum og sölu fyrirtækja ásamt endurskipulagningu rekstrar og efnahags. Einnig veitir félagið ráðgjöf við samruna- og yfirtökuferli fyrirtækja ásamt því að hafa milligöngu um fjármögnunarleiðir bæði gagnvart fjárfestum og fjármálastofnunum.
XAX Advisors veitir einnig ráðgjöf varðandi matsgerðir fyrir dómstóla.
XAX Advisors vinnur í nánu samstarfi við víðtækan hóp reyndra sérfræðinga að stórum og flóknum fjárhagslegum verkefnum þar sem mikillar sérhæfingar er krafist.